Aðalvalmynd

Textareitur

Er The Band Of Horses besta hljómsveit í heimi?

Auglýsing

Klukkan

Gagnasafn

Nýjast á B2.is

Hvaða ofurhetja ert þú?Halldór Örn Kjartansson

Ég er:
The Flash
The Flash
100%
Iron Man
90%
Superman
80%
Spider-Man
75%
Supergirl
70%
Wonder Woman
65%
Catwoman
65%
Green Lantern
65%
Hulk
55%
Robin
50%
Batman
35%
Fast, athletic and flirtatious.

Click here to take the "Which Superhero are you?" quiz...

Hvaða vondi kall ert þú?Halldór Örn Kjartansson

Ég er:
 Apocalypse
Apocalypse
71%
Mr. Freeze
67%
Venom
66%
Dr. Doom
66%
Magneto
63%
Mystique
56%
The Joker
53%
Juggernaut
52%
Green Goblin
48%
Lex Luthor
46%
Dark Phoenix
44%
Kingpin
41%
Poison Ivy
36%
Two-Face
32%
Catwoman
27%
Riddler
21%
You believe in survival of the fittest and you believe that you are the fittest.
Click here to take the "Which Super Villain are you?" quiz...

Uppgjör ársins 2006Halldór Örn Kjartansson

Í janúar fór ég til Danmerkur nánar tiltekið til Ringsted í bakara/konditor skóla og dvaldi þar í 10 vikur og það gekk framar öllum vonum og ég var hæðstur í öllum prófum og verkefnum og snýtti mér að þessum dönum, hehehUllandi þegar ég var búinn í skólanum fór ég til Herning í danmerkur á bakarasýningu með Pabba og Bigga frænda, það var helvíti fínt

Um miðjan apríl fór ég til Kúbu með familien vorum í 10 daga og það var allt innifalið sem er bara tær snilld maður drakk, lá í sólbaði og fór í sjóinn eða sundlaugina og svo á kvöldin var drukkið meira og djammað hvað er hægt að hafa það betra...

Í lok júní mánaðar tók ég mér 3 vikna sumarfrí og skellti mér til smábæjarins Pula í Króatíu með Casper vini mínum frá DK. Var fyrst einn dag í DK svo var haldið til Pula með LEST, já LEST það tók ekki nema 26 eða 27 tíma að komast alla leið, bara snilld að vera í lestinni, fullt af áfengi og horft á DVD og spilað póker... við vorum í lítilli íbúð í hótelgarðinum. Ferðin var vel heppnuð í alla staði, það var ódýrt áfengi, góður matur, sól og djamm á kveldinSvalurBrosandi

Í enda september fór ég aftur til Ringsted og dvaldi þar í 5 vikur og VÁ bara gaman, var í frábærum bekk með some cool people... drekka nánast alla daga, fór alltaf í fótbolta 2svar í viku(fullur), Singstar partý og “Rokk Hlaup” svo tróð ég smá lærdómi þarna inn á milli hehehUllandi

Á meðan ég var í skólanum fékk ég frí til að fara til Þýskalands með Pabba, Bigga frænda, Aron bróðir og Sveinbirni á IBA bakarasýningu í München, sem er sú stærsta í heimi... Dagurinn fór í það að vera á sýningunni og skoða sig um, kvöldin fóru í bjórdrykkju og bæjarrölt vel heppnuð ferð frá A-Ö...

Svo inná milli var ég að vinna og gera bara eitthvað ruglGlottandi fara í ræktina, djamma og bara vera ég sjálfur og lifa lífinu, sumarið frábærtBrosandi

Svona var árið 2006 hjá mér í stuttu máli, eitt besta árið í langan tíma eða síðan ég var 10 ára, þá gerði mar ekkert annað en að vera í hand –og fótbolta alla daga, öll kvöld og vera ungur og vitlaus...

l8r people,
Dóri konditor

The Year 2007Halldór Örn Kjartansson

Já það er satt sem stendur hér fyrir ofan, árið 2007 er komið og 3 vikur búnar:) Ákvað eftir mikla umhugsun að skella inn einni færslu, betur seint en aldrei...
Árið hefur byrjað vel hjá mér, það blómstrar allt hjá kappanum:) þótt það sé skítkalt alltaf hérna...
Það var lítill rostungur sem hvíslaði í eyra mitt og skipaði mér að setja einhverjar myndir hérna inn!! þær koma von bráðar, er að vinna í þessu öllu saman núna, verður komið inn fljótlega.... Svo ætla ég að setja inn það sem ég gerði á árinu 2006 í stuttu máli í næstu færslu:)

Segjum þetta gott í bili,
Dóri konditor

Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt árHalldór Örn Kjartansson

Óska hér með öllum fjölskyldumeðlimum, vinum og kunnigjum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

kveðja,
Dóri konditor

JólinHalldór Örn Kjartansson

Hellú, kjellinn loksins kominn með nýtt innslag hef ekki mikið nennt að sinna síðunni síðan að ég kom heim frá Englandi.. en ákvað að kasta inn einni færslu fyrir jólHlæjandi Fréttir? Allt gott að frétta af mér, er að vinna, í ræktinni og svo bara gera eitthvað tilgangslaust þar á milli hehe.. Svo kíkir maður einu sinni og einu sinni á djammið hér í bæ og skemmtir sér alltaf jafn velUllandi Um jólin verð ég hjá múttu eins og alltaf og borða besta mat í heimi að mínu mati, bíð eftir þessum mat allt árið. . . Áramótin mun ég dvelja hér á Akureyri, party party... Segjum þetta gott í bili, reyni að koma sterkur inn með blogg á nýju ári

Þangað til næst,
Dóri konditor

Manchester ferðinHalldór Örn Kjartansson

Sælt veri fólkið, strákurinn kominn á heim eftir vel heppnaða ferð og dúndurskemmtun... Þessi helgi var tær snilld frá A-Ö kom til Manchester á föstudagskveldinu og tók því bara rólega. Laugardagurinn var tekinn snemma og farið í Megastore og keypt sér United búningana og annan góðan varning, farið heim á hótel og gert sig kláran fyrir leik og lagt af stað á leikinn, leikurinn auðvitað bara snilld 3-0 flott mörk og mögnuð stemmning, 76.004 áhorfendur crazy margir! það besta við allt var að hótelið var í 5 mín fjarlægð frá vellinum:) Sunnudagurinn var tileinkaður Trafford Centre, verslað og slappað af í leikjasalnum:):) tær snilld og Chelsea tapaði líka:D Mánudagurinn var dagur heimferðinnar, tjékka sig snemma útaf hótelinu og farið í miðbæinn að rölta og skoða sig um og tekið því rólega, svo var farið á flugvöllinn um sexleytið og haldið heim á leið. . . vel heppnuð ferð í alla staði, nema kannski að ég var 1,5 tíma að fara í gegnum Security Control á Manchester vellinum, bömmer og ekki ýkja skemmtilegt!!!
Helgin í stuttu máli: verslað, leikurinn, verslað meira, chill og drukkið smá

En segi bara later people,
Dóri konditor

Kominn á klakannHalldór Örn Kjartansson

Jei Jei, kjellinn kominn heim loksins loksins... ég er kominn alla leið heim norður yfir heiðarnar og byrjaður að vinna og gamla góða rútínan að fara komast í gang, gæti ekki verið mikið betra, nema kannski að sötra kalda bjóra í skólanum en það verður að bíða í hálft ár í viðbót eða þar um bil.
Svo á fimmtudag er ég farinn aftur suður á leiðinni til Englands á föstudag... Kappinn að fara á Old Trafford
SvalurUllandi
Hlakka bara til sko, verð í 4 daga kem aftur norður á þriðjudag. . .

Nenni ekki að skrifa meira núna, líka komið nóg af þessu rugli í bili
until next time,

Dóri konditor

Mullet. . .Halldór Örn Kjartansson

Já, þið lásuð rétt góðir hálsar ég er kominn með mulletUllandi kjellinn orðinn agalega svalur hehehe...
Helgin 13-15:
Á föstudeginum var ég að vinna í Kagehuset í Field´s mjög gaman og áhugavert að prófa eitthvað nýtt, af hverju var ég að vinna? það var frí í skólanum seinnipart fimmtudags og föstudaginn svo ég hringdi í Dennis sem vinnur hjá Frederik Christiansen í DK og hann hringdi í Lars(eigandinn) og hann sagði að ég væri velkominn, svo ég ákvað bara að prófa að vinna þarna í staðinn fyrir að hanga og gera ekkert á heimavistinni.. svo þegar ég var að fara bauð eigandinn mér vinnu í 2 mánuði s.s. fram að jólum og einnig að koma í júní og vera í mánuð, veit ekki hvernig þetta mun þróast, þegar ég var búinn að spjalla við hann fór á strikið og skoða mig um og versla aðeins... á laugardeginum horfði ég svo á Wigan-Man Utd í TV og horfði á DVD(nokkrir kaldir með), sunnudagurinn fór í það að þvo þvott, spila pool og slappa af. . svona var helgin
Vikan 16-19:
Ég var að gera brúðkaupstertur, karmellu -og súkkulaðiskraut og marsipantertur í skólanum alla vikuna, mánudagurinn var þokkalega rólegur fyrir utan það að ég fékk mér MULLET, á þri og miðvikudag var horft á meistaradeildina með köldum bjór og snakki, líka á miðvikudeginum var haldinn Sing Star POP keppni í bekknum mínum(þeir sem búa á heimavistinni), ég var með Sigga í liði og við lentum í 2. sæti alveg ótrulegt miðað við að ég KANN EKKI að syngja, munaði bara nokkrum stigum... Fimmtudagurinn var ROSALEGT djamm því það var fullt að fólki að hætta á föstudeginum, var farið í bæinn og komið heim milli 4-5 og vaknað kl. 7 og farið í skólann, enginn þynnka var bara helvíti hress
Svalur
Helgin 20-22:
Föstudagurinn eftir djammið var mjög afslappaður og fínn, sofið og horft á TV... Gærdagurinn var líka sweet, fór í bæinn á röltið og tjékka stemmarann á götum og búðum í Ringsted, fínasta place, um kvöldið var pöntuð pizza og horft á Police Academy 5 og 9 Lives alveg svaðalegar myndir...Svalur sunnudagurinn(í dag) fer í það að læra fyrir prófin í næstu viku og horfa á Man Utd - Liverpool og Real Madrid - Barcelona, mjög fínn dagurHlæjandi
Svo fer að styttast í heimkomu, næsta föstudag kem ég á klakann, hlakka bara til að koma heim og hitta alla...

Hef ekki meira að segja og skrifa núna, later people
Dóri konditor

Helgin og ÞýskalandHalldór Örn Kjartansson

God dag mine dame og herrer, þetta var það fyrsta sem flugfreyjan sagði í kallkerfinu, kjellinn á leið til Þýskalands á IBA bakarasýninguna. Þessi sýning var bara ruuusaleg sko, sýningin var í 10 höllum, hver höll var á stærð við 5-6 Laugardagshallir eða þar um bil getum við sagt, helvíti gaman að vera þarna og skoða vélar, hráefni og allt sem kom við bakstri frá A-Ö. Ég var í mjög góðum félagsskap, þ.á.m. Pabbi, Biggi, Sveinbi og Aron bróðir o.fl. mikið var hlegið og haft gaman. Var á sýningunni frá 9 til 18, tala við hina og þessa um vélar og hráefni svo var farið á hótelið og tekinn einn eða tveir bjórar fyrir mat, svo var farið eitthvað út að borða, eftir mat var haldið á barinn aftur og spjallað um atburði dagsins og meira, svo var það bara í háttinn, mjög góð rútínaSvalur. Næst síðasta daginn fór ég og Aron í bæinn að versla og skoða okkur um, mjög stór miðbær og helvíti mikið að skoða.... ætti kannski ekki að vera segja frá þessu en kjellinn fór að skoða Lacoste skó í einni búð og fann eitt par sem mér leist vel á og ég bað Aron um að spyrja afgreiðslustúlkuna um að hvort hún ætti þessa skó í stærð 46? þá sagði hún bara: karladeildin er á neðstu hæðinni vinurUllandi ekki alveg að meika það í GermanyÓákveðinn... En ég og Aron gerðu alveg kostakaup í bænum. . .
Svo kom að heimför, vorum mættir á völlinn um 7:30 og áttum flug 9:05 svo þegar komið var upp í vélina þá var einhver vélarbilun sem átti ekki að taka nema 5 mín en tók 15-20. . svo sem allt í lagi, eftir það var önnur 20 mín seinkun vegna mikillar umferða í lofti og á brautinni, svo komst ég á leiðarenda til köben, þaðan kvaddi ég ferðafélaga mína og hélt til Ringsted í skólann var kominn um 13, lagði mig til að verða 16:00 og eftir góðan blund þá fór ég til köben að hitta tvær vinkonur mínar, Natasha og Nina og við fórum í Fields sem er stór verslunarmiðstöð staðsett rétt hjá Kastrup flugvellinum, kíktum í búðir og fengum okkur að borða Sushi, mæli með Sushi djöfull var þetta gott. Seinna um kveldið héldum við heim til Ninu og þar var drukkið einhver bjór, vodki o.fl. síðan var haldið "down town" á djammið, rooosalegt djamm get ég sagt þrusustemmari þetta kvöldið, gerðist fullt af hlutum sem ég mun ekki segja frá hérUllandi
, tók svo lestina tilbaka í skólann og á leiðinni heim í lestinni lenti ég í smá útistöðum við einn Tyrkja og honum var hent út af lestarkallinum. . Svo fór laug - og sunnudagurinn í það að horfa á fótbolta í TV, DVD-myndir í tölvunni og afslöppun mjög góð vika...

ekkert meira að þessu sinni heyrumst síðar,
Dóri konditor

Síða 1 af 2

Teljari

Könnun

Hvaða þátt viltu fá aftur í sjónvarpið?

Atburðarteljari

Leit

Leikur dagsins